Fréttir 2005

17/10 2005

Úthlutun úr Styrktarsjóði EBÍ lokið

Á fundi stjórnar EBÍ nýverið var úthlutað styrkjum úr Styrktarsjóði EBÍ. Mikill fjöldi umsókna barst sjóðnum. Alls var sótt um styrk til 39 verkefna frá 29 sveitarfélögum, en það er tæplega helmingur aðildarsveitarfélaga EBÍ.

Til úthlutunar komu fjórar milljónir og voru samþykktar styrkveitingar til 14 verkefna.

Styrktarsjóður EBÍ hefur verið starfræktur frá árinu 1996. Samtals hefur verið úthlutað styrkjum að upphæð 30.950.000 til 119 verkefna frá 68 sveitarfélögum.

Lista yfir úthlutanir sjóðsins frá upphafi er að finna annars staðar á heimasíðunni.

14/10 2005

EBÍ greiðir 450 milljónir króna í ágóðahlut til aðildarsveitarfélaga 14. október

Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands hefur ákveðið á grundvelli samþykkta fulltrúaráðs félagsins að greiða samtals 450 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar í ár. Greiðslan rennur til þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum. Aðildarsveitarfélögin eru 77.

Akureyri fær hæstu greiðsluna, eða rúmar 50 milljónir króna. Til Kópavogs renna tæpar 39 milljónir, Reykjanesbær fær tæpar 32 milljónir í sinn hlut, Ísafjarðarbær rúmlega 21 milljón, Vestmannaeyjabær 18 milljónir og til Fjarðabyggðar rúmar 16 milljónir.

Í samræmi við samþykktir félagsins mælast stjórn og fulltrúaráð EBÍ til þess við sveitarfélögin að þau verji framlaginu meðal annars til forvarna og brunavarna í sveitarfélaginu.

Ágóðahlutur aðildarsveitarfélaganna frá EBÍ hefur m.a. orðið til þess að nokkur sveitarfélög hafa endurnýjað slökkvibifreiðar sínar svo og annan slökkvibúnað.

EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni. Slíkar greiðslur hófust árið 1934 með samningi Brunabótafélags Íslands við sveitarfélög um fjármögnun slökkvitækja. Árið 1955 var gefin út sérstök reglugerð um þessar greiðslur, og aftur árið 1985. Á síðustu átta árum hafa aðildarsveitarfélögin fengið samtals greiddan um einn og hálfan milljarð króna í ágóðahlut.

Nánari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir, EBÍ. (Sími: 544-5070).